Hættumatsnefnd vegna vatns- og sjávarflóða
Skipuð 7. mars 2016.
Nefndinni er falið að gera tillögur til umhverfis- og auðlindaráðherra um hættumatsviðmið sem eiga að liggja til grundvallar vinnu við hættumat vegna vatnsflóða og sjávarflóða.
Veðurstofa Íslands mun veita nefndinni þá sérfræðiráðgjöf sem þörf er talin á vegna vinnu hennar. Ber nefndinni að kalla þá aðila til samráðs sem að málinu koma, s.s. forsætisráðuneyti, innanríkisráðuneyti, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Almannavarnir, Samgöngustofu og Landgræðslu ríkisins.
Áætlað er að nefndin skili tillögum til umhverfis- og auðlindaráðherra í árslok 2018.
Án tilnefningar
Hafsteinn Pálsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu Vegagerðarinnar
Sigurður Sigurðarson
Samkvæmt tilnefningu Veðurstofu Íslands
Sigrún Karlsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Arnbjörg Sveinsdóttir
Jón Viðar Matthíasson