Lýsing á aðgerð
B.1. Fræðsla starfsfólks.
Starfsfólk leikskóla hljóti fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni og forvarnir sem hæfa leikskólabörnum. Leikskólastjórar, með stuðningi frá skólaskrifstofum sveitarfélaga eftir því sem við á, beri ábyrgð á fræðslunni. Tryggt verði að allt starfsfólk hljóti lágmarksfræðslu á netnámskeiði, sbr. aðgerð A.4. Skólaskrifstofur bjóði upp á frekari fræðslu og umræðu innan umdæmis síns og stjórnendur leikskóla nýti annað fræðsluefni til að tryggja viðunandi þekkingu og þjálfun starfsfólks.
- Mælikvarði: 90% starfsfólks hafi lokið netnámskeiði fyrir lok árs 2025.
- Kostnaðaráætlun: Innan ramma.
- Ábyrgðaraðili: Leikskólastjórar.
- Dæmi um samstarfsaðila: Skólaskrifstofur, forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félag stjórnenda leikskóla, Barnaverndarstofa og frjáls félagasamtök.
Staða verkefnis
Haldinn var fundur með leikskólastjórnendum í maí 2022 og þingsályktunin kynnt. Í september 2022 hlaut svo starfsfólk leikskóla fræðslu um kynferðislegt ofbeldi og áreitni á örnámskeiði um grunnatriði kynferðisofbeldis, einkenni ofbeldis, ferli mála og tilkynningarskylduna. Námskeiðið var haldið í samstarfi með Barna- og fjölskyldustofu og Barnahúsi og sá sérstakur rannsakandi hjá Barnahúsi um námskeiðið. Þá hefur auk þess nýtt fræðsluefni um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni fyrir leikskóla verið kynnt. Haldinn var fundur með leikskólastjórnendum í byrjun árs 2024 þar sem netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu, sbr. aðgerð A.4, var kynnt og skólastjórnendur upplýst um að óskað verði eftir upplýsingum um fjölda starfsfólks sem lokið hefur netnámskeiðinu í lok skólaárs 2024.
Verkefnið telst vera komið vel á veg.